Vitinn

Hildur Arna Håkansson, kennari í Skarðshlíðarskóla

Episode Summary

Hildur Arna Håkansson er ungur kennari á unglingastigi í Skarðshlíðarskóla. Hún hefur vakið talsverða athygli fyrir sína kennsluhætti m.a. með notkun spjaldtölva. Hildur Arna þykir ná sérstaklega vel til unglinganna sem hún segir vera mjög áhugasama enda bera mörg verkefni þeirra þess merki. Hildur Arna er viðmælandi í nýjasta þætti Vitans, hlaðvarpi Hafnarfjarðarbæjar. Í þessu skemmtilega viðtali fer ekki á milli mála að hún er kennari af ástríðu. Hún er náttúrubarn og kennir náttúrufræði. Fyrir slíkan kennara er frábært að starfa í Skarðshlíðarskóla sem er með náttúruna í göngufjarlægð. Hildur hélt að hún vildi vera verkfræðingur en gekk út úr tíma í burðarþolsfræði og fór til námsráðgjafa. Þar voru örlög hennar ráðin, hún hóf kennaranám og sér ekki eftir því. Í viðtalinu var einnig rætt um kennslu og upplýsingatækni, notkun snjalltækja, af hverju kennarar eru svona virkir á Twitter, samfélagsmiðla og börn, aðlögun nemenda af erlendum uppruna og sérstöðu Skarðshíðarskóla svo fátt sé nefnt. Utan vinnunnar nýtur hún þess að vera úti í náttúrunni (kemur ekki á óvart), stundar kajakróður, ferðalög, er áhugasöm um tungumál og er að afla sér skotvopnaleyfis!