Vitinn

Helena Unnarsdóttir, deildarstjóri barnaverndar Hafnarfjarðar

Episode Summary

Barnavernd er fagleg þjónusta með góðan tilgang. Helena Unnarsdóttir, deildarstjóri barnaverndar Hafnarfjarðar, hefur verið búsett í Hafnarfirði frá tólf ára aldri og þykir óendanlega vænt um bæinn sinn og hafnfirskt bæjarsamfélag. Helena og samstarfsfólk hennar hjá barnavernd halda utan um mikilvæga þjónustu hjá sveitarfélaginu sem snýr að því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við. Eðli málsins samkvæmt getur þjónustan verið umdeild og margir sem hafa sterkar skoðanir á meðferð mála og afgreiðslu þeirra. Sér í lagi á stóru og erfiðu málunum sem eiga það til að enda í opinberri umræðu og mögulega ein hlið málsins fær sviðsljósið. Langflestum barnaverndarmálum ljúki farsællega og foreldrar/forráðamenn oft á tíðum ekki tilbúnir til að „útskrifast“ eftir handleiðslu og ráðgjöf þar sem veitt hafa verið viðeigandi og aðlöguð úrræði. Sterkt og náið samband myndist á milli hlutaðeigandi og sérstaklega gefandi fyrir starfsfólk að fylgjast með börnum og fjölskyldum blómstra eftir „útskrift“. Heilt yfir þá er það tilfinning hennar að mál séu orðin flóknari og erfiðari. Í þessu viðtali segir Helena okkur frá því ferli sem á sér stað þegar tilkynning berst inn á borð barnaverndar. Vikulegir fundir marka afstöðu til tilkynninga og hvort mál fari í könnun og þá skráð sem barnaverndarmál. Þá tekur við ákveðið ferli sem felur m.a. í sér greiningu, gagnaöflun, innleiðingu á aðlöguðum úrlausnum og eftirmeðferð. Í þættinum segir hún okkur líka nokkrar kraftaverkasögur eins og starfsmenn barnaverndar kjósa að kalla þær.