Vitinn

Halla Harpa Stefánsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi Hæfingarstöðvarinnar að Bæjarhrauni

Episode Summary

Halla Harpa Stefánsdóttir er forstöðuþroskaþjálfi Hæfingarstöðvarinnar að Bæjarhrauni í Hafnarfirði. Hundakona mikil sem hefur gert það að ævistarfi sínu að þjálfa, efla og þróa aðferðir og leiðir sem stuðla að notkun óhefðbundinna tjáskipta. Halla Harpa ákvað það 10 ára gömul að verða gæslusystir (sem síðar varð að starfsheitinu þroskaþjálfi) og hefur frá 16 ára aldri unnið að málefnum fatlaðs fólks, þá fyrst á gamla Kópavogshæli eftir að hafa fylgt móður sinni í störfum hennar á Kópavogshælinu frá unga aldri. Vann þar sjálf í átján ár og sér ekki eftir einum degi og fékk þar mikil tækifæri til þróunar og reynslu í starfi.

Episode Notes

Prúð og ákveðin ung dama í heimasaumuðum kjólum

Halla Harpa er fæddur sem frumbyggi í Kópavogi en á sterkar rætur í Hafnarfirði þar sem hún bjó til tuttugu ára áður en hún flutti á Álftanes þar sem hún býr í dag og ætlar sér að búa allt sitt líf með öllum sínum hundum og köttum og eiginmanni. Halla Harpa er alin upp við mikla prúðmennsku og heimasaumaða sparikjóla. Hún er yngst fjögurra systra og hafa tvær þeirra búið í Ameríku nær allt sitt líf. Hún flakkaði ung að árum milli systra sinna til að passa systkinabörn sín og þóttu það mikil forréttindi og upplifun að fá tækifæri til að ferðast erlendis á þessum tíma. 

Alltaf með puttana á nýjustu tækninni

Halla Harpa hefur unnið mikið brautryðjendastarf með Bliss tungumálið, þróun þess og möguleika en Bliss er dæmi um árangursríka og áhugaverða nálgun og aðferð í óhefðbundnum tjáskiptum. Hún situr í alþjóðlegri nefnd fyrir Bliss tungumálið og kemur þannig beint að þróun þess í alþjóðlegu samhengi og það í beinu samstarfi við þjónustunotendurna sjálfa og samstarfsfélaga sem hafa mikið um framgang tungumálsins að segja. Halla Harpa lítur á tjáskipti sem sjálfsögð grundvallarmannréttindi og elur á því að allir eigi strax frá unga aldri að fá tækifæri til tjáskipta. Þannig eigi enginn að hefja lífið án þess að geta tjáð sig. Hæfingarstöðin í Bæjarhrauni er einn af þeim mikilvægu og sérhæfðu starfsstöðvum sem Hafnarfjarðarbær rekur. Þangað koma daglega 23 þjónustunotendur með langvarandi stuðningsþörf til vinnu og snýr skipulögð þjónusta Hæfingarstöðvarinnar sér í lagi að þjálfun í notkun óhefðbundinna tjáskipta og í skynörvun sem leiðir til aukinna lífsgæða, aukinnar stjórnar á eigin lífi og til virkari þátttöku í samfélaginu.