Vitinn

Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar

Episode Summary

Í þessum þætti ræðir Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, líf sitt hjá bænum og með bænum síðustu áratugina. Geir er einn þeirra starfsmanna sem hafa meira og minna alla sína starfsævi starfað innan sveitarfélagsins. Þar hefur hann sinnt mörgum og mismunandi störfum sem flest eiga þau það þó sameiginlegt að snúa að börnum og ungmennum og eflingu þeirra á einn eða annan máta. Þar spila forvarnir, hreyfing og heilsa mjög stórt hlutverk og hefur Geir komið að og hrint í framkvæmd áhugaverðum forvarnarverkefnum og heilsuverkefnum sem eru til þess að auðga samfélagsandann og elfa andlega og líkamlega heilsu Hafnfirðinga heilt yfir. Geir starfar einnig sem forsvarsmaður starfshóps um heilsueflandi samfélag en síðustu árin hefur Hafnarfjörður verið að stimpla sig inn sem Heilsubærinn Hafnarfjörður og það í öflugu samstarfi við hafnfirskt samfélag, félagasamtök, íþróttafélög, einstaklinga og starfsfólk. Hafnarfjörður hefur löngum verið mikill íþróttabær og hefur árum saman alið af sér meistara á nær öllum sviðum íþróttalífsins og árið 2015 gekk Hafnarfjarðarbær til samninga við Embætti landlæknis um formlega þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag.