Vitinn

John Friðrik Bond Grétarsson, verkefnastjóri Hamarsins ungmennahúss

Episode Summary

Sviðsljósið í Vitanum þessa vikuna á John Friðrik Bond Grétarsson, verkefnastjóri Hamarsins, ungmennahúss sem opnað var í gömlu Skattstofunni að Suðurgötu 14 í Hafnarfirði fyrir rétt tæpu ári síðan. Í þessum þætti segir John okkur frá orkunni sem hann var uppfullur af sem ungt barn og baráttu hans við að beisla orkuna og finna sinn farveg. Ungur ákvað hann að mennta sig í tómstunda- og félagsmálafræði og nýta þannig reynslu sína og sögu öðrum ungmennum til eflingar og hvatningar. John Bond var, að eigin sögn, kátur, hress og hvatvís og uppátækjasamur með eindæmum og skólinn ekki endilega sá vettvangur þar sem þessir eiginleikar hans fengu að njóta sín. Hann var um nokkurra ára skeið í uppreisn en ákvað, við 16 ára aldur, að spila með foreldrum og barnaverndarnefnd þegar honum voru settir afarkostir um að fara í langtímaúrræði út á land eða taka þátt í forvarnarverkefni hér í Hafnarfirði sem sniðið var í kringum hann og fleiri orkumikla stráka og vini. Hópurinn skýrði verkefnið UÁB – unglingar á batavegi – og mótaði í framhaldinu umhverfi og félagsstarf þar sem þeir fengu að blómstra á eigin forsendum og út frá eigin hæfileikum undir góðri handleiðslu. Á þessum tímapunkti sá John ljósið og kosti þess að hætta í uppreisn og taka þátt og verða fyrirmynd og vinur ungmenna sem eru að fóta sig í lífinu. Eftir útskrift starfaði John um árabil í Vinakoti, heimilislegu búsetuúrræði og þjónustumiðstöð fyrir ungmenni með fjölþættan vanda. John segir okkur einnig frá starfinu sem er að eiga sér stað í Hamrinum og hvernig hann vill ekki vera „hausinn“ í starfinu. Ungmennin sjálf sjá alfarið um að skipuleggja kvöldopnanir en dagstarfið og móttaka ólíkra og fjölbreyttra ungmenna á öllum aldri með mismunandi áhugamál yfir daginn er á hans hendi. John og ungmennin mótuðu og sköpuðu ungmennahúsið og starf hússins frá grunni og er starfið enn í mótun og mun verða áfram.