Vitinn

Bjartir dagar í allt sumar

Episode Summary

Menningarhátíðin Bjartir dagar verður haldin í Hafnarfirði í allt sumar. Hátíðin mun verða hattur fjölbreyttra hátíðarhalda vítt og breytt um bæinn, sem gleðja mun bæjarbúa og gesti bæjarins og endurspegla allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði. Tryggvi Rafnsson og Andri Ómarsson fara, í þessum fyrsta þætti eftir hlé, yfir hvernig hátíðinni verður háttað í sumar ásamt því að ræða sérstaklega örstyrkina sem hægt er að sækja um til þess að halda viðburði og uppákomur um allan bæ í sumar.

Episode Notes

Menningarhátíðin Bjartir dagar verður haldin í Hafnarfirði í allt sumar. Hátíðin mun verða hattur fjölbreyttra hátíðarhalda vítt og breytt um bæinn, sem gleðja mun bæjarbúa og gesti bæjarins og endurspegla allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði. Í venjulegu ári stendur þessi fyrsta bæjarhátíð landsins yfir í fimm daga en ákveðið hefur verið að hátíðin, sem hófst síðasta vetrardag með vali á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar, afhendingu menningarstyrkja og sumarsöng nemenda, standi yfir í allt sumar. Fjármagn til frumkvæðisverkefna hefur verið aukið og allir áhugasamir hvattir til að sækja um örstyrki til viðburða og skemmtunar á Björtum dögum sumarið 2021.

Tryggvi Rafnsson og Andri Ómarsson fara, í þessum fyrsta þætti eftir hlé, yfir hvernig hátíðinni verður háttað í sumar ásamt því að ræða sérstaklega örstyrkina sem hægt er að sækja um til þess að halda viðburði og uppákomur um allan bæ í sumar.