Vitinn

Eiríkur G. Stephensen, skólastjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar

Episode Summary

Eiríkur G. Stephensen, skólastjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, var minnstur í bekknum þegar hann var yngri, matvandur mjög og frekar feiminn fram eftir aldri og lítill í sér. Hann fékk mjög listrænt uppeldi, lærði sjálfur á blokkflautu sex ára gamall og kann í dag ekki á öll hljóðfæri eins og margur heldur. Eiríkur ræðir í þessu spjalli Vitans um mikilvægi tónlistar í stóra samhenginu, lífið sem Hundur í óskilum og þá sköpun sem er að eiga sér stað í Tónlistarskóla Hafnafjarðar alla daga. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar er stór tónlistarskóli sem er alltaf að prófa sig áfram í þróun og nýsköpun í skólastarfi með virkri þátttöku starfsfólks og nemenda. Eiríkur tók við starfi skólastjóra Tónlistarskóla Hafnarfjarðar haustið 2018 og hefur á stuttum tíma ekki bara náð að stimpla sig vel inn í skólasamfélagið í Hafnarfirði og gera góða hluti með hæfileikaríkum samstarfsfélögum hjá tónlistarskólanum heldur hefur líka séð ljósið og er fluttur til Hafnarfjarðar og búinn að koma sér vel fyrir í hjarta Hafnarfjarðar.